Excel og áætlanagerð

4.1.2010

Eigandi Vita ehf, Brynjólfur Ómarsson, hefur allt frá árinu 1998 unnið við verkefni tengd áætlanagerð fyrir ýmis fyrirtæki. Verkefnin hafa snúist um úrvinnslu innsendra upplýsinga, skipulagningu áætlanaferlis og sérsmíði tóla fyrir áætlanagerð bæði í Excel, Access og í .NET. Meðal annars hefur hann unnið verkefni tengd áætlanagerð fyrir Eimskip, Vífilfell, Sæplast, Kraftvélar, Baug og Landsbankann.

Ef þú ert að leita að einföldum, þægilegum Excel lausnum eða vilt smíða þitt eigið áætlanakerfi ofan á núverandi fjárhagskerfi fyrirtækisins, þá getum við aðstoðað.

Við getum að sjálfsögðu tekið að okkur hvers kyns önnur verkefni tengd Excel eða fjárhagskerfum.