Veflausnir

4.1.2010

Veflausnir okkar byggja allar á .NET. Meðal nýlegra verkefna sem við höfum unnið má nefna ættartal.is og bókasmiðjuna.is.

Á ættartal.is geta notendur búið til sitt eigið ættartal deilt því með öðrum vinum og ættingjum. Vefurinn var settur í loftið í ágúst 2009 og nú þegar eru um 3.000 notendur skráðir. Á vefnum er hægt að skrá ættingja, sögur sem þeim tengjast, tengla, fréttir og fleira. Ýmsar viðbætur eru fyrirhugaðar á vefnum, svo sem tenging við ljósmyndasöfn og að geta birt niðjatal eða forfeður á öðrum vefjum.

Bókasmiðjan.is er vefur þar sem notast er við það nýjasta í actionscript og flash til að leyfa notendum að hanna sínar eigin ljósmyndabækur á einfaldan hátt. Bækurnar eru svo prentaðar út á hágæðapappír og sendar til notenda. Vefurinn var tekinn í notkun í byrjun desember 2008 og viðbrögð notenda hafa verið frábær. Stefnt er að því að beita sömu tækni til að bjóða upp á fleiri afurðir á árinu 2009.

Gbballett.is. Vefurinn er einfaldur upplýsingavefur fyrir Ballettskóla Guðbjargar Björgvins. Stjórnunarviðmót er einfalt og þægilegt og býður upp á all nokkurn sveigjanleika. Vefurinn birtir stakar síður, fréttir og myndasöfn.

Nokkur fleiri verkefni eru í burðarliðnum, bæði netverslanir, upplýsingavefir og vefsíður venjulegra fyrirtækja.