Heim > Fréttalisti > Fréttir

Vefurinn ættartal.is opnaður

11.8.2009

Í dag opnuðum við vefinn ættartal.is. Við höfum gengið með þessa hugmynd í maganum lengi, en nú loks hrintum við henni í framkvæmd og opnuðum fyrir almenning.

Á vefnum geta notendur skráð ættir sínar, börn, maka og foreldra, skráð sögur, skrifað fréttir, sett inn myndir og tengt þær við einstaklinga í ættinni. Markmiðið með vefnum að gera áhugafólki um ættfræði tæki til að búa til lifandi vef með upplýsingum um sína eigin ætt.

Til baka í allar fréttir