Hleyptu lífi í plakötin
Með raflýstum hreyfimyndaplakötum geturðu náð fram hreyfi-effektum í plakötin þín, líkt og með einfaldri Flash auglýsingu. Þessi plaköt koma í staðinn fyrir ljósakassana sem nú eru víða notaðir og eru miklu þægilegri í uppsetningu. Plakötin eru örþunn, mynda ekki hita, og hægt er að lýsa upp ákveðna hluta plakatsins á hverjum tíma til að vekja athygli áhorfenda. Hér að neðan eru nokkur sýnishorn af plakötum sem sýna hvernig effekta er hægt að setja upp.
Helstu kostir umfram hefðbundin plaköt, eða ljósakassa eru:
- Örþunn plaköt (<1mm)
- Hreyfi-effektar sem fanga athygli
- Lítil rafmagnsnotkun
- Engin hitamyndun
- Hágæðaupplausn
- Mynd sést vel þrátt fyrir að slökkt sé á plakatinu
Hafið samband í 699 4774 eða sendið póst á brynjolfur(hjá)vitar.com til að fá nánari upplýsingar eða til að skoða sýnishorn.
Sýnishorn af plakötum




Borðmottur
Hægt er að útbúa borðmottur sem sams konar effektum - t.d. til að nota sem undirskriftamottur fyrir kortaviðskipti.


Gólfmottur
Einnig er hægt að útbúa gólfmottur með níðsterkri hlíf ofan á.

