Guangzhou er miðstöð vefnaðarvöruframleiðslu í Kína og þjónar hlutverki dreifingarmiðstöðvar fyrir suðurhluta Kína og alla suðaustur Asíu. Hér eru þúsundir framleiðanda og dreifingaraðila. Við getum aðstoðað þig við framleiðslu á fatnaði í Kína.
Ekki er nauðsynlegt að láta framleiða mikið magn í einu, en auðvitað lækkar verðið ef það er gert. Við höfum sambönd við framleiðendur af öllum stærðum og gerðum og getum látið framleiða hvers kyns fatnað, íþróttafatnað, boli, yfirhafnir og tískufatnað. Einnig getum við aðstoðað við framleiðslu á skóm, beltum, töskum og ýmsum aukahlutum.
Við sjáum einnig um að fylgjast með framleiðslunni, tollafgreiða hana út úr landinu og senda til Íslands.
Sendu okkur fyrirspurn á brynjolfur(hjá)vitar.com.