viðskiptaþjónusta í Kína

við aðstoðum þig við að koma hugmynd þinni í framkvæmd í Kína

Vitar ehf eru lítið íslenskt þjónustufyrirtæki með skrifstofu í Guangzhou í Kína. Við höfum undanfarið ár unnið við ýmis verkefni fyrir Íslendinga og aðra sem stunda viðskipti í Kína. Við höfum m.a. séð um að koma af stað fataframleiðslu fyrir fyrirtæki frá Brúnei undir þeirra eigin vörumerki, aðstoðað bandarískt fyrirtæki við framleiðslu á spilakössum, útvegað vefnaðarvöru, skartgripi og gjafavörur fyrir íslensk fyrirtæki og útvegað túlka fyrir viðskiptamenn frá öllum heimsálfum.

Á skrifstofu okkar starfa einnig fjórir forritarar og við getum tekið að okkur ýmis verkefni í hugbúnaðargerð.

Viltu framleiða fatnað?

Ef þú hefur áhuga á að framleiða fatnað undir eigin vörumerki, þá getum við séð um það. Skrifstofa okkar er í Guangzhou, sem er stór viðskiptamiðstöð í suður-Kína og þjónar sem framleiðslu- og dreifingarmiðstöð fyrir margra milljarða markaði í Kína og Suðaustur-Asíu. Hingað sækja fyrirtæki frá öllum heimshornum til að láta framleiða fyrir sig vörur eða kaupa inn vörur í litlu, jafnt sem miklu magni.

Magn er ekki vandamál í fataframeiðslu hér. Við höfum sambönd við allnokkra framleiðendur, stórar verksmiðjur sem og litlar saumastofur sem geta tekið að sér verkefni af ýmsum stærðum og gerðum. Auðvitað er verðið hærra þegar framleitt er lítið magn, en við reynum að finna hentugan framleiðanda fyrir hvert verkefni.

Sendu okkur póst á brynjolfur(hjá)vitar.com ef þú vilt fræðast betur um möguleika á fataframleiðslu.

Viltu kaupa vefnaðarvöru beint frá Kína?

Við höfum aðgang að þúsundum vefnaðarvöruframleiðenda í Kína og getum útvegað vefnaðarvöru úr bómull, silki, gerviefnum og nánast hverju sem er á verði sem er langt undir verði á Íslandi. Vegna flutningskostnaðar og lágmarksmagns hentar þetta e.t.v. ekki einstaklingum, en ef kaupa þarf einhverja tugi eða hundruð metra af efni þá er hægt að gera frábær kaup hér.

Annað

Ekki hika við að senda okkur póst ef þú hefur einhverjar spurningar eða ert að velta fyrir þér möguleikum í Kína.

Sendu okkur póst á brynjolfur(hjá)vitar.com.